LJósanæturball í kvöld - Mikilvægar upplýsingar
September 4, 2024
Hvetjum alla til að skoða vel þessar upplýsingar, vera með allt á hreinu fyrir kvöldið og mæta með góða skapið

The body content of your post goes here. To edit this text, click on it and delete this default text and start typing your own or paste your own from a different source.

Söngkeppni Kragans verður haldin í Hljómahöll þann 6.mars. Kraginn samanstendur af Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Vogum, Grindavík, Seltjarnarnesi, Garðabæ og Mosfellsbæ. Þau sem taka þátt í keppninni geta unnið sér inn sæti í söngkeppni Samfés sem er haldin í maí ár hvert. Skráning fer fram í öllum okkar félagsmiðstöðvum eða í gegnum QR kóða hér fyrir ofan. Skráningarfrestur er til 27.febrúar!

Hafnó er nú með nýja opnunartíma fyrir miðstigið! Við bjóðum nemendur á miðstigi velkomna í Hafnó á Hafnargötu 88, þar sem þau geta hist, haft gaman og tekið þátt í fjölbreyttri og skemmtilegri starfsemi í öruggu og notalegu umhverfi. Í Hafnó er lögð áhersla á góða stemningu, vináttu, virðingu og virkni og starfsemin mótast af áhuga og hugmyndum þátttakendanna sjálfra.

Félagsmiðstöðin Fjörheimar kynnir nýjung í starfi sínu: hinsegin opnanir alla fimmtudaga kl. 20:00–22:00 í húsnæði okkar að Hafnargötu 88. Hinsegin opnanir eru ætlaðar ungmennum á aldrinum 13–17 ára og er markmið þeirra að skapa öruggt, hlýtt og opið rými þar sem hinsegin ungmenni geta verið þau sjálf og kynnst öðrum hinsegin ungmennum. Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að veita hinsegin ungmennum stuðning, styrkja eigin sjálfsmynd og gefa þeim kost á að tilheyra hinsegin samfélagi. Á opnununum verður lögð áhersla á notalegt andrúmsloft, samveru og starfsemi sem mótast af þörfum og áhuga þátttakenda. Starfsfólk á opnununum eru Sonja og Andrea. Öll sem skilgreina sig sem hinsegin eða eru í hinsegin pælingum, eru hjartanlega velkomin. 🌈Sjáumst í Fjörheimum á fimmtudögum!


